Hið árlega Nýársskákmót Vinaskákfélagsins fer fram mánudaginn 4. janúar 2021.
Í þetta sinn fer mótið fram á netinu þ.e. á chess.com.
Nýársskákmótið mun fara fram á grúbbu Vinaskákfélagsins
https://www.chess.com/club/vinaskakfelagid
og þurfa þátttakendur að skrá sig í grúbbuna til að vera með.
Mótið er 6 umferðir með 4 + 2 mínútur á klukkuna.
Klukkur verða ræstar stundvíslega 19:35.
Glæsileg verðlaun verða í boði og vonast stjórn Vinaskákfélagsins að skákmenn fjölmenni á þetta glæsilega skákmót.
Af heimasíðu Vinaskákfélagsins.
- Auglýsing -















