Skákárið 2020 er eitt það allra sérstakasta í skáksögunni. Ekkert Reykjavíkurskákmót, ekkert Íslandsmót skákfélaga og ekkert Ólympíuskákmót. Auk þess sem langflest Norðurlanda-, Evrópu- og heimsmeistaramót féllu niður eða fóru fram á netinu í mjög styttri útgáfu. en gengu vel og úr urðu skemmtileg verkefni fyrir yngri kynslóðina.

Engu að síður fóru fram frábær og minnisstæð mót í kófinu sem haldin voru við mjög sérstakar aðstæður og gengu samt afar vel og má þar nefna Skákþings Íslands í Garðabæ, Íslandsmót grunn- og barnaskólasveita í maí, Haustmót TR, og Íslandsmót ungmenna í desember.
Tveir Norðurlandameistaratitlar komu í hús á einu Norðurlandamótinu sem fram fór í raunheimum!
Árið 2020 var árið sem foreldrar máttu ekki lengur mæta á skákstað til að fylgjast með börnunum sínum tefla.
Og svo voru það öll netmótin og í fyrsta og væntanlega eina skipti fóru Íslandsmótin í hrað- og atskák fram á netinu. Hjörvar Steinn Grétarsson vann alla Íslandsmeistaratitlana sem í boði voru á netinu! Og nú kanna allir skákmenn á Zoom!. Skáksjónvarpið sló í gegn!

Vonandi hefst skákstarf í raunheimum fyrr en seinna á nýju ári og nýtt ár þýði fjölda móta hérlendis sem erlendis!
Ritstjóri óskar skák og skákmönnum gleðilegs nýs (skák)árs og þakkar fyrir hið liðna!


















