Teimor Radjabov (2758) vann sigur á Airthings Masters mótinu sem lauk á Chess24 í gær. Aserinn vann Armenann Levon Aronian (2778) í úrslitum á fremur sannfærandi hátt. Aðeins þurfti þrjár skákir í gær. Radjabov, sem vann sigur á síðasta heimsbikarmóti, en hafnaði svo sæti í áskorendamótinu eins og frægt er virðist vera í feiknaformi um þessar mundir.

MVL (2860) vann sigur á Daniil Dubov (2770) í baráttunni um bronsið.
Sjá nánar á Chess24.
- Auglýsing -
















