Toppuppgjöri Jóhanns Hjartarson og Guðmundar Kjartansonar lauk með sigri Jóhanns sem er orðinn einn efstur á Íslandsmótinu með 4.5 vinning af 6 mögulegum. Hjörvar lagði hinn unga Vigni Vatnar í snaggaralegri skák og kemur næstur með 4 vinninga. Fjórir skákmenn koma svo með 3.5 vinning.
Lítum yfir skákir dagsins:
Bragi Þorfinnsson – Björn Þorfinnsson

Þeir bræður Bragi og Björn Þorfinnssynir tefldu lengstu skák dagsins og börðust þar til báðir áttu aðeins kóng eftir á borðinu. Báðir stóðu til vinnings á einhverjum tímapunkti en hvorugur gaf sig.
Vignir Vatnar Stefánsson – Hjörvar Steinn Grétarsson

Vignir ætlaði að tefla af miklu öryggi og var á leiðinni að fá mjög örugga stöðu og möguleika á að tefla gegn stöku peði. Hjörvar sýndi þá þor sem aðeins stórmeistarar hafa. Hjörvar gaf staka peðið til þess að opna línur og fá frumkvæðið. Þetta herbragð heppnaðist fullkomlega og Hjörvar vann góðan sigur sem fleytti honum upp í annað sætið.
Helgi Áss Grétarsson – Sigurbjörn Björnsson

Kóngsindverjinn var á boðstólnum í þessari skák. Helgi fékk mjög fína stöðu þegar riddari Sigurbjörns varð að taka sér setu á b7 reitnum. Helgi byggði upp stöðuyfirburði og blés svo til sóknar sem kostaði Sigurbjörn liðsafla og loks skákina.
Alexander Oliver Mai – Hannes Hlífar Stefánsson

Sikileyjarvörnin varð að broddgaltaruppstillingu og staða Hannesar sprakk út þegar hann náði vel tímasettu gegnumbroti með …d5. Tveir passífir leikir hjá Alexander, Bf2 og Ra1 gáfu kost á þessu gegnumbroti. Í kjölfarið vann Hannes lið og skákina nokkuð auðveldlega.
Jóhann Hjartarson – Guðmundur Kjartansson

Jóhann beitti í annað sinn lokaðri Sikileyjarvörn en hann hafði unnið góðan sigur á Hjörvari með þeirri byrjun í annarri umferð. Guðmundur fékk líklegast betra tafl en þegar hann fór í röng uppskipti á svartreitabiskupum stökk Jóhann inn eins og hrægammur og nýtti sér veikleika í svörtu kóngsstöðunni. Góður sigur hjá Jóhanni og er hann nú einn efstur.
Staðan

Pörun 7. umferðar

Taflið heldur áfram á morgun klukkan 15:00 eins og alla daga og beinar lýsingar verða í boði á Skákvarpinu og hægt að horfa á skákirnar í beinni á ýmsan hátt (sjá tengla að neðan)
Kópavogur, Arion banki, Brim og Teva styðja á myndarlegan hátt við mótshaldið.
Helstu tenglar
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Skákvarpið
- Beinar útsendingar (heimasíða)
- Beinar útsendingar (Chess24)
- Beinar útsendingar (Chess.com)
- Beinar útsendingar (Followchess)
- Beinar útsendingar (Chessbomb)


















