Efstu menn Jóhann Hjartarson t.h. við taflið í gær. Helsti keppinautur hans, Hjörvar Steinn Grétarsson, fylgist með. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Baráttan um titilinn Skákmeistari Íslands 2021 virðist ætla að verða á milli Jóhanns Hjartarsonar og Hjörvar Steins Grétarssonar. Jóhann, sem varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1980, þá 17 ára gamall, stefnir að sínum sjöunda titli en Hjörvar hefur aldrei sigrað á Íslandsþinginu þótt oft hafi litlu mátt muna. Hann byrjaði fremur illa á mótinu en hefur nú unnið þrjár skákir í röð. Jóhann vann Sigurbjörn Björnsson í gær og Hjörvar vann Alexander Oliver Mai. Ekki lágu öll úrslit fyrir en staðan í skák Guðmundar Kjartanssonar og Braga Þorfinnssonar var jafnteflisleg og einnig staðan í skák Helga Áss Grétarssonar og Hannesar Hlífars Stefánssonar.

Staðan fyrir tvær síðustu umferðirnar var þessi: 1. Jóhann Hjartarson 5½ v. (af 7) 2. Hjörvar Steinn Grétarsson 5 v. 3. Vignir Vatnar Stefánsson 4½ v. 4.-7. Helgi Áss Grétarsson, Bragi Þorfinnsson, Guðmundur Kjartansson og Hannes Hlífar Stefánsson 3½ vinning hver og skák ólokið þegar blaðið fór í prentun. 8. Björn Þorfinnsson 2 v. 9. Sigurbjörn Björnsson 1 v. 10. Alexander Oliver Mai ½ v.

Í áttundu og næstsíðustu umferð, sem tefld verður í dag, mun Jóhann tefla við Braga Þorfinnsson og hefur hvítt en Hjörvar teflir við Helga Áss Grétarsson og hefur svart. Í lokaumferðinni á föstudaginn teflir Jóhann svo við Hannes Hlífar Stefánsson en Hjörvar mætir Sigurbirni Björnssyni.

Hinn átján ára gamli Vignir Vatnar Stefánsson hefur náð góðum árangri í mótinu og í gær vann hann Björn Þorfinnsson næsta auðveldlega. Björn setti sér það markmið að verða ofar bróður sínum á þessu Íslandsmóti, virtist á góðri leið að því marki er hann sneri töpuðu tafli í vinning gegn Jóhanni Hjartarsyni en hefur ekki náð að fylgja því eftir. Skák hans í gær gegn Vigni Vatnari gekk þannig fyrir sig:

Skákþing Íslands 2021; 7. umferð:

Björn Þorfinnsson – Vignir Vatnar Stefánsson

Tarrasch-vörn

1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rf3 d5 4. e3 a6 5. b3 c5 6. cxd5 Rxd5 7. Be2 cxd4 8. Rxd4 Bb4+ 9. Bd2 Bc5 10. Rc3 Bxd4 11. exd4 Re7 12. Be3 Bd7 13. f3 Bc6 14. Dd2 Rd5 15. Bf2 Rxc3 16. Dxc3 Bd5 17. 0-0 Rc6 18. Dc5 De7 19. Hab1 0-0 20. a3 Hfc8 21. Hfc1 Dd8

Svartur hefur fengið heldur betri stöðu eftir byrjunina og hótar máti. 22…. Ra5. Björn hugðist koma í veg fyrir þann leik…

22. Bg3?

22…. Bxb3!

Með hugmyndinni 23. Hxb3 Ra5! og vinnur.

23. Bf2 Bd5 24. Db6 Dxb6 25. Hxb6 Ra5 26. Hc5 Rb3! 27. Hxd5 Hc1+!

Sterkur millileikur sem tryggir sigurinn.

28. Be1 exd5

– og hvítur gafst upp.

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 29. apríl 2021.

- Auglýsing -