Víkingaklúbburinn vann góðan 6,5-1,5 sigur á TG. Guðlaug náði hins vegar jafntefli gegn Jóhanni.

Víkingaklúbburinn hefur 6½ vinnings forskot á SSON að lokinni áttundu og næstsíðustu umferð Íslandsmóts skákfélaga sem fram fór í kvöld. Víkingaklúbburinn hefur því níu fingur á Íslandsmeistaratitlinum og aðeins kraftaverk virðist geta komið í veg fyrir að hann lendi í Víkingsheimilinu. Byrjum á því að skoða úrslit kvöldsins.

Úrslit kvöldins

Víkingaklúbburinn vann góðan, 6½-1½, sigur á Taflfélagi Garðabæjar. Þar reyndar vakti mesta athygli að Guðlaug Þorsteinsdóttir (TG) gerði jafntefli við Jóhann Hjartarson (Víkingaklúbbnum) á fyrsta borði.

Björn ívar virðist hafa lagt á bæn í upphafi skákar. Það dugði vel!

Óvænt úrslit urðu þegar Skákfélag Akureyrar vann SSON með minnsta mun. Björn Ívar Karlsson (SA) gerði sér lítið fyrir og vann þýska landsliðmanninn Alexander Donchenko (SSON) sem jafnframt er stigahæsti keppandandi mótsins.

Hannes og Helgi Áss slóu á létta strengi við upphaf skákar sem lauk með jafntefli.
Hjörvar náði fram hefndum eftir tap gegn Guðmundi á Skákþingi Íslands.

Huginn og Taflfélag Reykjavíkur gerðu 4-4 jafntefli í spennandi viðureign Hjörvar Steinn Grétarsson (Huginn) vann Guðmund Kjartansson (TR) á fyrsta borði.

Blikar bitu frá sér með og unnu góðan sigur á Fjölni. Víkingaklúbburinn-b vann TR-b í uppgjöri b-sveitanna og komust upp fyrir b-sveit TR.

Það er orðið nánast 100% ljóst hvað sex sveitir skipa úrvalsdeildina að ári.

Hverjir geta orðið Íslandsmeistarar?

Þrjár sveitir hafa tölfræðilegan möguleika á titlinum.

Víkingaklúbburinn hefur 6½ forskot á SSON og 7½ vinnings forskot á Hugin. Í lokaumferðinni mætast hins vegar Víkingaklúbburinn og Huginn annars vegar og SSON og b-sveit Víkingalúbbsins hins vegar. Komi hins vegar til þess að tvær eða fleiri sveitir jafnar að vinningum tapar ávallt Víkingaklúbburinn ávallt. Skoðum möguleikana.

Fái Víkingaklúbburinn 2 vinninga á móti Hugin er titilinn í höfn. Tapist viðureignin 0-8 er titilinn fyrir bý en ½-1½ vinningur gæti dugað ef SSON fær ekki 6 vinningum meira en Víkingaklúbburinn.

Eina von Hugins er 8-0 sigur og eina von SSON er að hreinsa nánast gegn b-sveit Víkinga og treysta jafnframt á að Huginsmenn nái frábærum úrslitum gegn Víkingum, og vinni í minnsta lagi 6½-1½.

Í lokaumferðinni verða viðureignir Víkingaklúbbsins og Hugins og TR og SA sýndar beint.

2. deild

Baráttan í 2. deild er á milli Skákdeildar KR og Taflfélags Vestmannaeyja sem mætast í lokaumferðinni. KR-ingar hafa 1½ vinnings forskot og mega við því að tapa 2½-3½. B-svetir Hugins og Skákfélags Akureyrar eru jafnar í 3.-4. sæti. Þessar fjórar sveitir eru öruggar um sæti í 1. deild (næstefstu deild) á næsta keppnistímabili.

Úrslit 6. umferðar

 

Mótstaflan

Fjögur efstu liðin tefla í 1. deild að ári. Það er öruggt hvaða lið það verða.

Nánar á Chess-Results. 

Sóttvarnir

Minnt er á að ekki er hægt að fara á milli hólfa í sömu umferð. Sérstaklega er áréttað að finni menn til einhverra einkenna sem gætu bent til Covid-19 er stranglega bannað að mæta á skákstað.

Hólfaskipting

Hólf 1 Hólf 2 Hólf 3
1. deild 1. deild 2. deild
TR Bridge
Sunnudagurinn, 16. maí, kl. 11:00
SSON-Víkb TRb-Fjölnir 2. deild
TRa-SA Breiðablik-TG
Víka-Huginn
- Auglýsing -