Lokaskákin Fischer og Taimanov við taflið í Vancouver 1971. Sjötta og síðasta skákin er hafin. — Morgunblaðið/Chess24.com

Fyrir fimmtíu árum, í maí 1971, hófst áskorendakeppni FIDE, átta manna útsláttareinvígi sem réði því hver hlyti réttinn til að skora á heimsmeistarann Boris Spasskí. Þessi keppni hefur algera sérstöðu í skáksögunni því þarna vann Bobby Fischer slíka yfirburðasigra að slíkt hefur aldrei gerst, hvorki fyrr né síðar. Ég hef áður getið þess að einvígið hafi verið mun innihaldsríkara en úrslitin gáfu til kynna en Fischer vann eins og frægt varð 6:0. Úrslitin voru reiðarslag fyrir sovéska skákskólann og segja má að veröld Taimanovs hafi hrunið þessa vordaga í Vancouver í Kanada. Taimanov hafði fengið góða aðstoð gamla heimsmeistarans Mikhaels Botvinniks sem lét honum í té möppu væna með athugunum á skákstíl Fischers, styrkleikum, veikleikum og helstu einkennum. Merkilegt plagg. Í bók sinni Bobby Fischer and His World fjallaði John Donaldsson um einvígið frá sjónarhóli heimamanna og velunnara Fischers vestra. Einn heimildarmaður er kanadískur skákmeistari, Peter Biyiasas, sem færði leikina fyrir áhorfendur á sýningarborði. Fischer gaf sig á tal við hann og nokkra vini og þeim fannst talsmáti meistarans og slanguryrði einna helst minna á mótorhjólatöffara úr „hverfinu“. Annar áhorfandi kvaðst aldrei hafa orðið að vitni að jafn sterkri einbeitni nokkurs manns. Larry Evans átti að vera aðstoðarmaður Fischers en ekki var okkar maður að fara úr karakter í samskiptum sínum við Evans, lagði blátt bann við að eiginkona væri með í för og krafðist þess að Evans myndi ekki skrifa um einvígið meðan á því stæði. Evans sat heima.

Helsti stuðningsmaðurinn var hins vegar framkvæmdastjóri bandaríska skáksambandsins, Ed Edmondson, sem hafði náð samkomulagi um atlögu Fischers að heimsmeistaratitlinum með ákvæðum varðandi umbun fyrir hvert skref í átt að settu marki. Hann hafði komið því í gegn á þingi FIDE að Fischer fengi þátttökurétt á millisvæðamótinu í Palma 1970.

Taimanov átti bestu færin í fyrstu skak einvígisins en í flóknu miðtafli gat hann nokkrum sinnum tryggt sér yfirburðastöðu. Það átti eftir að koma í ljós hversu vel Fischer meðhöndlaði biskupana og þá einkum þann hvítreita. Í annarri skákinni vann hann peð eftir byrjunina en úrvinnslan vafðist fyrir honum og Taimanov varðist vel:

Áskorendaeinvígið í Vancouver 1971; 2. skák:

Fischer – Taimanov

Komist svarti kóngurinn í hornið, þ.e.a.s. til h8, er staðan fræðilegt jafntefli. Jafntefli var að hafa með 81. … Rd3 82. h4 Rf4 83. Kf5 Kd6! 84. Kxf4 Ke7 og staðan er jafntefli. En Taimanov lék 81. … Ke4?? og svarið kom um hæl; 82. Bc8! Kf4 83. h4 Rf3 84. h5 Rg5 85. Bf5! Rf3 86. h6 Rg5 87. Kg6 Rf3 88. h7 Re5+ 89. Kf6 – og svartur gafst upp.

Í þriðju skákinni fékk Taimanov nokkuð vænlega stöðu, hugsaði sig um í meira en 70 mínútur í flóknu miðtafli, missti þráðinn og tapaði. Hann var nú kominn með ofan háan blóðþrýsting og gert var nokkurra daga hlé á einvíginu. Fjórða skákin er talin sú besta og endataflið sem Fischer vann hrein snilld:

Áskorendaeinvígið í Vancouver 1971; 4. skák:

Fischer – Taimanov

61. Be8!

Svartur er í leikþröng

61…. Kd8 62. Bxg6! Rxg6 63. Kxb6 Kd7 64. Kxc5 Re7 65. b4 axb4 66. cxb4 Rc8 67. a5 Rd6 68. b5 Re4+ 69. Kb6 Kc8 70. Kc6 Kb8 71. b6 – og Taimanov gafst upp.

Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 8. maí 2021. 

- Auglýsing -