Víkingar unnu stórsigur á Blikum.

Víkingaklúbburinn endurheimti efsta sætið með 7-1 stórsigri á Breiðabliki í sjöundu umferð. SSON sem var efst fyrir umferðina tapaði hins vegar 3-5 fyrir Hugin þar sem það það vakti athygli að Huginsmenn töpuðu einni skák í ótefldri skák. Eitthvað sem gæti reynst dýrt í mótslok.

Öðrum viðureignum lauk öllum með stórsigrum sem fóru ýmist 7-1 eða 7½-½. Fjölnir, SA og TR unnu þær viðureignir. Með þeim sigrum hafa þau nánast gulltryggt sig inn í nýja úrvalsdeild sem hefst í haust.

Úrslit dagsins

Einstaklingaúrslit má nálgast hér. 

Mótstaflan

Hlutirnir hafa heldur best skýrst varðandi nýja úrvalsdeild sem hefst í haust. Þar tefla sex efstu liðin nú. Breiðblik og TG virðast vera úr leik í þeiri baráttu.

Áttunda og næstsíðasta umferð hefst kl. 17.  Viðureignir Hugins og TR sem og Akureyringa og Selfyssinga verða sýndar beint.

Viðureignir áttundu umferðar

 

2. deild

KR-ingar unnu Akureyringa.

Fimmta umferð 2. deildar fór fram í dag. B-sveit Hugins vann stórsigur 6-0 á b-sveit. Aðrar viðureignir fóru 4½-1½ þar sem Hrókar alls fagnaðar, KR-ingar og Eyjamenn unnu sínar viðureignir. KR-ingar eru efstir, Eyjamenn aðrir og Huginsmenn þriðju.

Úrslit 5. umferðar

 

Mótstaflan

Fjögur efstu liðin tefla í 1. deild að ári.

Nánar á Chess-Results. 

Sóttvarnir

Minnt er á að ekki er hægt að fara á milli hólfa í sömu umferð. Sérstaklega er áréttað að finni menn til einhverra einkenna sem gætu bent til Covid-19 er stranglega bannað að mæta á skákstað.

Hólfaskipting

Hólf 1 Hólf 2 Hólf 3
1. deild 1. deild 2. deild
TR Bridge
Laugardagurinn, 15. maí, kl. 17:00
TG-Víka Fjölnir-Breiðablik 2. deild
Huginn-TRa Víkb-TRb
SA-SSON
Sunnudagurinn, 16. maí, kl. 11:00
SSON-Víkb TRb-Fjölnir 2. deild
TRa-SA Breiðablik-TG
Víka-Huginn
- Auglýsing -