
Einn af hápunktum Grafarvogsdagsins 2021 var Skákmót Miðgarðs og Skákdeildar Fjölnis í Hlöðunni Gufunesbæ. Glæsilegt skákmót ætlað grunnskólanemendum í Grafarvogi. Tefldar voru 5 umferðir og jöfn og spennandi keppni um efstu sætin, verðlaunabikara og verðlaunapeninga.

Teflt var í þremur flokkum; drengjaflokki, stúlkur eldri og stúlkur yngri. Íslandsmeistarar Rimaskóla í 1. – 3. bekk sýndu sig og sönnuðu á mótinu og unnu í tveimur flokkum af þremur. Tristan Fannar Jónsson í 2. bekk vann flokk drengja þrátt fyrir að vera langyngstur strákanna. Nikola Klimaszweska í 5. bekk sigraði í flokki eldri stúlkna og Emilía Embla B. Berglindardóttir í 3. bekk vann sigur í yngri flokki stúlkna. Öll unnu þau með fullu húsi vinninga.

Helmingi fleiri stúlkur tóku þátt í mótinu en drengir og er það ábyggilega einsdæmi á opnu skákmóti hér á landi.
Þeir Helgi Árnason og Jóhann Arnar Finnsson frá Skákdeild Fjölnis ásamt Ragnari Harðarsyni frá Þjónustumiðstöðinni Gufunesbæ stjórnuðu skákmótinu sem var í fyrsta sinn, en örugglega ekki síðasta, haldið á Grafarvogsdegi.











