Gauti og Vignir eru báðir að tafli í Danmörku. Sitthvoru mótinu reyndar!

Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2399) og skákmeistarinn Gauti Páll Jónsson (2045) hófu í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Kaupamannahöfn. Mótið er haldið í tilefni 85 ára afmæli ØBRO-skákklúbbsins. Þar ræður Íslandsvinurinn og KR-ingurinn Søren Bech Hansen ríkjum. Þess má geta að Skákdeild KR styður við þátttöku þeirra.

Í gær og í dag eru tefldar tvær umferðir. Þeir félagarnir töpuðu báðir í fyrstu umferð en komu sterkir inn í 2. umferð. Þá vann Vignir Vatnar danska FIDE-meistarann Jens Albert Ramsdal (2259) og Gauti gerði jafntefli við danska FIDE-meistarann John Filip Rendboe (2180).

- Auglýsing -