Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2577) tapaði fyrir íranska stórmeistaranum Amin M Tabatabaei í 3. umferð FIDE Grand Swiss mótinu í Riga í Lettlandi. Hjörvar hafði svart, lenti í erfiðri stöðu eftir afleik í 24. leik í tímarhraki. Hann þurfti að lúta í dúk eftir 48 leiki.
Fjórða umferð fer fram í dag og hefst kl. 11. Þrátt fyrir að hafa hálfan vinning teflir Hjörvar enn við töluvert stigahærri andstæðing sem segir margt um mótið og styrkleika þess. Andstæðingur dagsins er Kasakinn Rinat Jumabayev (2658).
Frakkinn Alireza Firouzja (2770) er efstur með fullt hús. Engin skákkona hefur fullt hús í kvennaflokki en níu hafa 2,5 vinninga.
108 keppendur taka þátt í opna flokknum og þar af eru 107 stórmeistarar! Hjörvar er nr. 96 í stigaröð keppenda sem segir margt um styrkleika mótins.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)















