Alþjóðlega unglingamótið í Uppsölum í Svíþjóð hófst í gær. Venju samkvæmt taka íslensk ungmenni þátt í mótinu. Í ár tefla alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2399), FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2253) og Alexander Oliver Mai (2049). Tveir hinna fyrrnefndu hafa verið fastagestir á mótinu og báðir náð að vinna það en Alex tekur þátt í fyrsta skipti. Hilmir teflir á sína síðasta ári – er of gamall að ári!
Vignir og Hilmir unnu báðir stigalægri andstæðinga í fyrstu umferð. Alexander gerði jafntefli við franska FIDE-meistarann Adam Frank (2366).
Tvær umferðir fara fram í dag og hófst sú fyrri kl. 8. Þegar þetta er ritað sitja Hilmir og Alex enn að tafli. Vignir gerði jafntefli við Jachym Nemec (2286).
Alls taka 38 skákmenn þátt í mótinu. Vignir er fjórði í stigaröð keppenda, Hilmir er nr. 19 og Alex nr. 28.
















