Þriðja umferð á Íslandsmóti öldunga (65+) kláraðist í gær í húsakynnum Skáksambandsins við Faxafen 12. Þrjár umferðir voru tefldar um helgina og þrjár um næstu helgi.
Fyrir umferðina leiddi Þór Valtýsson með fullt hús, 2 vinninga af 2 mögulegum.

Björgvin Víglundsson stoppaði sigurgöngu Þórs en hann lagði hann að velli í þriðju umferðinni. Ólafur Kristjánsson lagði Braga Halldórsson og fer Ólafur vel af stað með sigra gegn Áskeli og Braga. Ólafur og Björgvin deila því forystunni með 2,5 vinning af 3.
Þór kemur þar á eftir með 2 vinninga en Júlíus Friðjónsson hefur náð honum að vinningum.

Haraldur Haraldsson sýndi hvers hann er megnugur og lagði alþjóðlega meistarann Áskel Örn Kárason og Páll G. Jónsson hafði betur gegn Jóni Steini Elíassyni.
Skákstjórinn og allt-muligt maður Don Roberto eða Róbert Lagerman eins og hann heitir sér um að heiðursmennirnir svelti ekki á mótinu!

Björgvin og Ólafur mætast í 4. umferðinni sem fram fer um næstu helgi.














