Íslensku liðin komust loks bæði á blað í 4. umferðinni á EM landsliða. Tæknilega séð var kvennaliðið „komið á blað“ eftir yfirsetu en þær stimpluðu sig rækilega inn með flottum sigri á sterku og metnaðarfullu liði Tyrkja.
Íslenska liðið í opnum flokki gerði 2-2 jafntefli gegn Makedónum og komust þar með á blað, nú liggur leiðin bara upp á við!

Hjörvar kom sterkur inn eftir hvíldina og liðið stendur og fellum mikið með honum í framhaldinu. Hjörvar tefldi gegn Benoni vörn Nikolovski og beitti þekktu þema sem gjarnan er kennt við skák Penrose og Tal. Látum hana fylgja hér með skák Hjörvars.

Hannes tefldi byrjunina af miklum krafti gegn ítalska leiknum og lagði mikið á stöðuna. Sóknarmöguleikar Hannesar virtust vera til staðar en Makedóninn tefldi vel og tók yfir stöðuna þegar leið á.
Á þriðja borði hafi Jóhann hvítt gegn kóngsindverskri vörn Risteski. Svartur fórnaði skiptamun og virtist fá nægjanlegar bætur fyrir hann. Jóhanni varð eitthvað á í miðtaflinu og spil svarts varð of sterkt. Ritstjórn fékk skemmtilega sögulega ábendingu með þessa skák og verður komið inn á það í greinarkorni síðar!
Þar sem íslenska liðið var nú 1-2 undir kom það í hlut Guðmundar Kjartanssonar að bjarga skiptum hlut. Það gerði Guðmundur og dróg enn einu sinni vagninn. Gummi er nú með 3,5 af 4 og að eiga gott mót. Hann heldur því vonandi áfram!


Kvennaliðið komst yfir í sinni viðureign þegar Ekaerina Atalik beitti það sem unga fólkið kallar „Botez gambit“…fyrir okkur eldri heitir það bara að leika af sér drottningunni! Fingurbrjótur sem Lenka nýtti sér hið snarasta og íslenska liðið í góðum málum!
Næsta skák að klárast var hjá Liss á fjórða borði. Liss fékk fína stöðu en miðtaflið fór eitthvað úrskeiðis og sú tyrkneska tók yfir.
Staðan orðin 1-1.
Hallgerður tefldi fína skák og stóð lengi vel aðeins betur. Spurning hvort hægt hefði verið að halda lengur í d-peðið en að sama skapi var líklega erfitt að gera sér mat úr frelsingjanum með alla þungu menn beggja aðila að miða á peðið.
Staðan einfaldaðist og jafntefli niðurstaðan.
Nú var ljóst að allt myndi ráðast í skák Jóhönnu. Skákin var gríðarlega spennandi og sviptingasöm. Jóhanna virtist snemma fá strategískan langtímaséns á að tefla á móti innimúruðum biskup á b1. Allt var í háa lofti lengi vel, tímahrak og taugar þandar. Jóhann virðist nærast á svona óræðum stöðum og tefldi eins og herforingi og sigldi fyrsta liðssigri Íslands á þessu móti í höfn, vel gert!
Fyrirfram voru undir 9% líkur á íslenskum sigri og því glæsilegur sigur hér á ferð!

Íslenska liðið í opnum flokki mætir Wales í fimmtu umferð og ekkert nema sigur kemur til greina! Kvennaliðið fær Slóveníu 2 sem er aðeins ofar en íslenska liðið í styrkleikaröðun. Klárlega sóknarfæri þar hjá kvennaliðinu og vonandi fylgja þær eftir góðum sigri á Tyrkjum.
Umferðir hefjast klukkan 14:00 að íslenskum tíma
Skákvarpið má finna hér og hefjast útsendingar 15:30-16:00

















