Íslandsmót grunnskóla – stúlknaflokkur fer fram í Rimaskóla laugardaginn 19. mars og hefst kl. 11.
Teflt verður í þremur flokkum.
Fyrsti og annar bekkur
Fimm umferðir með tímamörkunum 4+2.
Þriðji til fimmti bekkur
Sex umferðir með tímamörkunum 6+2.
Sjötti til tíundi bekkur
Sex umferðir með umhugsunartímanum 8+2
Umferðafjöldi getur breyst með tilliti til fjölda þátttökuliða. Keppendur geta teflt upp fyrir sig, þ.e. með eldri sveit síns skóla. Í hverri sveit skulu vera fjögur borð. Varamenn mega vera allt að þrír. Engin takmörk eru fjölda liða frá hverjum skóla.
Þátttökugjald á sveit: 10.000 kr. Hámark 20.000 kr. á skóla.
Smáraskóli, Hörðuvallskóli og Salaskóli urðu Íslandsmeistarar stúlknasveita í fyrra. Sjá nánar hér.
Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 17, þann 17. mars. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.












