Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2470) hóf í gær þátttöku á alþjóðlegu móti í Cattolica á Ítalíu. Hann vann Ítalann Pietro Mirri (2119) í fyrstu umferð.
Tvær umferðir fara fram í dag. Jóhann mætir alþjóðlega meistaranum Virgilio Vuelban (2288) í fyrri umferð dagsins.
Því miður er ekki boðið upp á beinar útsendingar.
65 keppendur frá 20 löndum taka þátt í mótinu og þar af eru 13 stórmeistarar. Jóhann er nr. 12 í stigaröð keppenda.
- Auglýsing -














