Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2470) hefur 2½ vinning eftir 3 umferðir á alþjóðlegu móti í Cattolica á Ítalíu.

Jóhann vann alþjóðlega meistaranum Virgilio Vuelban (2288) í fyrri umferð gærdagsins. Í þeirri seinni tók hann hálfs vinnings yfirsetu. Um er ræða „túrbó-mót“ þar sem tefldar eru tvær umferðir á dag.

Í fyrri umferð dagsins teflir Jóhann við belgíska stórmeistarann Daniel Dardha (2540).

65 keppendur frá 20 löndum taka þátt í mótinu og þar af eru 13 stórmeistarar. Jóhann er nr. 12 í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -