Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2470) hefur 3½ vinning eftir 5 umferðir á alþjóðlegu móti í Cattolica á Ítalíu. Hann er í 7.-16. sæti.
Jóhann gerði í gær tvö jafntefli í gær við stórmeistara. Annars vegar við Belgann Daniel Dardha (2540) og hins vegar við Ítalann Danyyil Dvirnyy (2496).
Tvær umferðir fara fram í dag. Í fyrri umferð dagsins teflir Jóhann við rússneska stórmeistaran Arseniy Nesterov (2522).
65 keppendur frá 20 löndum taka þátt í mótinu og þar af eru 13 stórmeistarar. Jóhann er nr. 12 í stigaröð keppenda.
- Auglýsing -














