
Þó að sigur Taflfélags Reykjavíkur á Íslandsmóti skákfélaga sem lauk um síðustu helgi hafi hangið á bláþræði þá verður að telja hann sanngjarnan þó að lengst af hefði sveit Taflélags Garðabæjar örugga forystu en var undarlega þróttlaus á lokasprettinum. Fyrir lokaumferðina átti TR eitt stig á Garðabæinga og mætti öflugri sveit Fjölnis og vann nauman sigur, 4½:3½. Þegar nokkuð var liðið á viðureignina átti Margeir Pétursson við ramman reip að draga í skák sinni við Dag Ragnarsson og það sama gilti um Karl Þorsteins sem tefldi við Hilmi Frey Heimisson. En þessum þrautreyndu skákmönnum tókst með góðri vörn að halda jöfnu. Staða Helga Áss Grétarssonar var heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir, en hann sneri taflinu við í skákinni við Hollendinginn Robert Ris og vann.
Margeir Pétursson hefur undanfarin ár fengið með til keppni fyrir TR hinn kunna liðsstjóra/þjálfara Evrópumeistara Úkraínu, Alexander Sulypa. Sá sá góði maður varð eftir að þessu sinni – til að verja land sitt og þjóð. Annar Úkraínumaður, Mykhaylo Oleksiyenko, kom í hans stað og var drjúgur fyrir TR. Aðrir sem tefldu fyrir a-sveit TR um helgina voru Þröstur Þórhallsson, Karl Þorsteins, Guðmundur Kjartansson, Helgi Áss Grétarsson, Ingvar Þ. Jóhannesson, Mikkel Jakobsen, Daði Ómarsson, Bárður Örn Birkisson og Alexander Oliver Mai.
Akureyringar kvöddu úrvalsdeildina með hetjulegri baráttu gegn Garðbæingum og töpuðu, 3½: 4½.
Lokaniðurstaða Úrvalsdeildar varð þessi: 1. TR 16 stig 2. TG 15 stig 3. Víkingaklúbburinn 12 stig 4. Fjölnir 10 stig 5. Breiðablik 6 stig. 6. SA 1 stig.
Í fyrsta sinn var tefld tvöföld umferð í úrvalsdeildinni. Hugmyndin var alltaf sú að keppnin færi fram á þrem helgum en greinilegt er að kostnaður vex mörgum í augum. Fyrstu tvær umferðirnar fóru fram í húsakynnum TR í Faxafeni en lokaumferðirnar fóru fram í Egilshöll.
Margir voru að ná góðum úrslitum á Íslandsmótinu, t.d. Helgi Áss Grétarsson sem hlaut 8 vinninga af 10 mögulegum, með árangur sem reiknast upp á 2621 elo-stig. Héðinn Steingrímsson hlaut 7½ v. af 10, árangur upp á 2656 elo-stig.
Í 1. deild sigraði skákdeild KR og flyst upp í Úrvalsdeild. Í 2. deild vann skákdeild Blika öruggan sigur og í 3. deild sigraði d-sveit TR, Í 4. deild vann Skákfélag Sauðárkróks yfirburðasigur.
Jóhann Hjartarson og Vignir Vatnar stóðu sig báðir vel um helgina. Þeir mættust í lokaumferðinni og lenti Vignir í krappri vörn:
Íslandsmót skákfélaga 2021-2022; 10. umferð:
Jóhann Hjartarson – Vignir Vatnar Stefánsson
Liðsafli er jafn en kóngsstaða hvíts er betri og svartur er að burðast með slæman biskup og þrjá
„akademíska veikleika“. Jóhann leitaði lengi að vinningsleið með gegnumbroti á drottningarvæng en fann ekki. Samt er rétta leiðin að leika 45. a5! og eftir 45. … bxa5 46. Bxa5 Be7 47 Bc7 Bf6 bakkar hvítur með biskupinn, 48. Bb6 Be7. 49. Ba5!
Minnir á „þríhyrninginn“ – þekkt leikbragð í peðsendatöflum. Eftir 49. … Bf6 50. Bc7! Bg7 51. Bd8 Bh6 52. f3! er svartur í leikþröng og missir peð.
Jóhann dró lið sitt til baka og lék 45. Bc1 og eftir 45. … Bc7 46. Kf3 Kd5 47. Ke2 e4! voru erfiðleikar svarts ekki alveg að baki en jafnteflinu náði Vignir eftir 66 leiki.
Skákþættir Morgunblaðsins birtast á Skák.is viku síðar en í blaðinu sjálfu. Þessi skákþáttur birtist 12. mars 2022.














