Stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson varði í dag Íslandsmeistaratitil sinn þegar hann lagði Vigni Vatnar Stefánsson að velli í áttundu umferð. Hjörvar vinnur titilinn í ár þrátt fyrir að ein umferð sé eftir. Lokaumferðin fer fram sem fyrr í Bankanum Vinnustofu, frábærri aðstöðu á Selfossi.
Skákin í dag var sú fyrsta til að klárast og var í raun óvenju stutt. Vignir misreiknaði sig og …Rd4 leikur hans þar af leiðandi mjög slakur.
Aðrar skákir umferðarinnar voru margar skemmtilegar. Hannes tefldi skemmtilega sóknarskák í Kerer-árásinni gegn sikileyjarvörn Þrastar. Sókn Hannesar varð óstöðvandi.
Alexander Oliver fékk gott frumkvæði en náði ekki að fylgja því eftir og Héðinn lét liðsaflann telja.
Hilmir og Símon rugguðu ekki bátnum í sinni skák og jafntefli varð niðurstaðan.
Guðmundur og Bragi tefldu mikla baráttuskák sem endaði á því að Bragi lenti leik dagsins í 40. leik og hafði betur.
Mikil barátta er um hin tvö verðlaunasætin en Íslandsmeistaratitilinn verður hjá Hjörvari allavega eitt ár í viðbót!
Staðan fyrir lokaumferðina

Pörun lokaumferðar

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
Skákvarp 8. umferðar:

















