Landsmótið í skólaskák 2022 mun fara fram um helgina í sal Siglingafélagsins Ýmis í Kópavogi. Salurinn hentar vel fyrir skákviðburði og má nefna að Íslandsmótið fór þar fram fyrir nokkrum árum ásamt fleiri skemmtilegum viðburðum.

Tefldar verða 9 umferðir, allir við alla með atskáktímamörkum, 15 mínútum á alla skákina plús 5 sekúndur í viðbótartíma. Tíu keppendur eru í yngri flokki (1.-7. bekkur) og tíu keppendur í eldri flokki (8.-10. bekkur).

Beinar útsendingar verða frá öllum skákum og vefmyndavél úr salnum.

Í úrslitunum tefla eftirfarandi skákkrakkar:

Eldri flokkur

Höfuðborgarsvæðið

Benedikt Briem Hörðuvallaskóla Kópavogi

Ingvar Wu Skarphéðinsson Hlíðaskóla Reykjavík

Gunnar Erik Guðmundsson Salaskóla Kópavogi

Þorsteinn Jakob Þorsteinsson Álfhólsskóla Kópavogi

Jón Bragi Þórisson Breiðholtsskóla Reykjavík

Landsbyggð

Sæþór Ingi Sæmundarson Grunnskóla Vestmannaeyja

Kristján Ingi Smárason Borgarhólsskóla Húsavík

Adam Omarsson Landakotsskóla Reykjavík (varamaður)

Stelpa Katrín María Jónsdóttir Salaskóla Kópavogi

Boðssæti Iðunn Helgadóttir Landakotsskóla Reykjavík

 

Yngri flokkur

Höfuðborgarsvæðið

Matthías Björgvin Kjartansson Melaskóla Reykjavík

Mikael Bjarki Heiðarsson Vatnsendaskóla Kópavogi

Jóhann Helgi Hreinsson Vatnsendaskóla Kópavogi

Guðmundur Orri Sveinbjörnsson Vatnsendaskóla Kópavogi

Markús Orri Jóhannsson Háteigsskóla Reykjavík

Landsbyggð

Markús Orri Óskarsson Síðuskóla Akureyri

Sigþór Árni Sigurgeirsson Oddeyrarskóla Akureyri

Karma Halldórsson Grunnskólanum á Ísafirði

Stúlka Guðrún Fanney Briem Hörðuvallaskóla

Boðssæti Emilía Embla Berglindardóttir

 

Dagskrá:

Laugardagur: 1. umferð hefst 12:00. Tefldar verða fyrri fimm umferðirnar og lýkur dagskránni þennan dag klukkan um það bil 16:00.

Sunnudagur: 6. umferð hefst 12:00. Tefldar verða seinni fjórar umferðirnar og fer verðlaunafhending fram upp úr 15:00.

Mótið er komið á Chess-results: Eldri flokkur | Yngri flokkur

 

 

 

 

- Auglýsing -