Vignir Vatnar Stefánsson (2496) og Hilmir Freyr Heimisson (2323) fengu báðir 1 vinninga í 2. og 3. umferð Copenhagen Chess Challange sem fram fór í gær í Ballerup. Báðir unnu þeir í 2. umferð en þriðja umferðin reyndist þeim erfið.
Í 2. umferð vann Vignir danska FIDE-meistaranum Nicolai Kvist Brondt (2242) og Hilmir lagði danska alþjóðlega meistarann Filip Boe Olsen (2407) að velli.
Í síðari umferð dagsins tapaði Vignir fyrir úkraínska stórmeistarann Dmitri Komarov (2493) og Hilmir fyrir þýska FIDE-meistarann Jonas Hacker (2396).
Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst nú kl. 8. Í þeirri fyrri teflir Vignir við danska FIDE-meistarann Viktor Haarmark Nielsen (2323) og Hilmir við sænska stórmeistarann Erik Blomqvist (2523). Í síðari skák dagsins teflir Vignir ítalska stórmeistarann Sabino Brunello (2521) en Hilmir við danska alþjóðlega meistarann Martin Haubro (2428).
Um er að ræða túrbó-mót sem teflt er á fimm dögum.
Stefán Bergsson (2090) og Gauti Páll Jónsson (2065) sitja að tafli á alþjóðlegu móti við Helsingjaeyri. Þeir tefla báðir í átta manna flokkum. Flokkaskiptingin í fyrirrúmi!
Í gær fóru fram tvær fyrstu umferðirnar. Stefán hefur 1½ vinning en nágranni hans úr Arnarhlíðinni hefur 1 vinning. Þriðja umferð fer fram í dag og hefst kl. 15.















