Hannes að tafli í Prag. Mynd: BKS

Eins og kom fram í seinasta pistli þá gekk önnur umferð alls ekki nægilega vel fyrir utan góð úrslit hjá Hannesi Hlífari og Alesandr Domalchuk.

Rétt eins og við var að búast bitu strákarnir heldur betur frá sér í þriðju umferð og sótti 6 vinninga af 8 mögulegum.

Hér má sjá samantekt frá þriðju umferð:

Alexsandr Domalchuk og Hannes Hlífar unnu báðir sínar skákir. Alexsandr sigraði 2400 stiga Pólverja sannfærandi og Róbótinn heldur áfram að malla og stefnir á að vinna þetta mót.

Þeir félagar eru báðir með fullt hús og eru til alls líklegir.

Vignir Vatnar og Hilmir Freyr unnu sínar skákir á mettíma eða eftir minna en klukkutíma, enda að tefla við mun stigalægri andstæðinga og því eðlilegt.

Þeir félagar eru báðir búnir að lofa mér að þeir munu koma út í plús á þessu móti.

Alexander Oliver Mai og Benedikt Briem tóku báðir góða sigra á móti 2000 stiga mönnum – fengu báðir góða stöðu eftir byrjunina og leystu vel úr taktískum stöðum og sigldu þessu heim.

Matthías Björgvin fékk skákmann yfir 2000 elóstig þriðju umferðina í röð og tapaði því miður skákinni snemma.

MIkael Bjarki tapaði gegn stigalausum andstæðingi sem reyndist vera rúmlega 2000 stiga maður á Chess.com en samt sem áður svekkjandi úrslit.

MBK og MBH eiga enn eftir að komast á blað en það hlýtur að detta á morgun.

Staðan:

Alexandr Domalchuk og Hannes Hlífar eru efstir í mótinu ásamt nokkrum öðrum með fullt hús.

Vignir Vatnar, Alexander Oliver Mai og Benedikt Briem eru með tvo vinninga af þremur.

Hilmir Freyr er með einn og hálfan vinning.

Eins og áður sagði þá eiga Mikael Bjarki og Matthías Björgvin eftir að koma sér á blað, en undirritaður er viss um að það detti á morgun.

Bestu kveðjur frá Prag,

- Auglýsing -