Vignir er einn þriggja íslenskra keppenda að tafli í Slóvakíu. Mynd: Facebook-síða Chessbase India

Hilmir Freyr Heimisson hefur hálfs vinnings vinningsforskot í Árósum fyrir lokaumferðina. Lenka Ptácníková er í öðru sæti í Prag. Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson gerðu jafntefli í gær í Slóvakíu. Alexander Oliver Mai teflir í Sevilla. Héðinn Steingrímsson hefur taflmennsku á morgun á NM í skák.

Slovakia Open Piestany 

Sjöunda umferð fór fram í gær.

Helgi Áss Grétarsson (2472) og Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerðu báðir jafntefli í gær. Alexandr Domalchuk-Jonasson (2246) tapaði sinni skák.

Helgi Áss hefur 4½ vinning, Vignir Vatnar hefur 4 vinninga og Aleksandr hefur 3 vinninga.

Áttunda og næstsíðasta umferð hófst núna kl. 8.

64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.

Zlata Praha Open

Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær.

Lenka Ptácníková (2066) vann, Adam Omarsson (1794) gerði jafntefli en Jósef Omarsson (1606) tapaði.

Lenka hefur 6½ vinning og er í 2. sæti á mótinu. Adam og  Jósef hafa 4½ vinning

Lokaumferðin hófst núna kl. 7:30.

34 skákmenn frá 5 löndum taka þátt í mótinu. Mótið fer fram 9.-17. júlí.

Skolernes 50 ára afmælismót

Áttunda og næstsíðasta umferð fór fram í gær.

Hilmir Freyr Heimisson (2281) gerði jafntefli á etsta borði. Björn Hólm Birkisson (2095) tapaði sinni skák.

Hilmir hefur 6½ vinning og hálfs vinnings forskot á næsta mann á mótinu. Björn Hólm hefur 3 vinninga.

Lokaumferðin hófst kl. 8.

22 keppendur taka þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 11.-17. júlí.

Ciudad de Sevilla

Alexander Oliver Mai (2159) átti að hefja þátttöku í alþjóðlegu móti í Sevilla á Spáni í gær.

Því miður virðist Chess-Results tengill mótsins ekki virka en líklegast hefur Alex unnið í gær þar sem hann hefur færst upp um borð á Chess24.

Tvær umferðir eru tefldar í dag.

Til leiks eru skráðir 183 skákmenn frá 20 löndum. Mótið fer fram 16.-23. júlí.

NM í skák

Norðurlandamótið í skák fer fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum

Héðinn Steingrímsson (2513) verður fulltrúi Íslands í opnum flokki og er áttundi í stigaröð keppenda. Næststigahæstur Norðurlandabúa.

Fyrsta umferð hefst kl. 14 á morgun.

- Auglýsing -