Gunnar Björnsson. Mynd: Ómar Óskarsson

Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki.

Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!

Gunnar Björnsson forseti SÍ er fulltrúi á FIDE-þinginu.

Nafn

Gunnar Björnsson

Félag

Stofnaði Taflfélagið Helli árið 1991 og hef ekki síðan skipt um félag. Er því í dag félagi í Taflélagi Garðabæjar!

Aldur

54 = viskualdur!

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Mikhail Tal og Judit Polgar. 

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Við fulltrúar Norðurlandanna hittum frambjóðendur til forsetaembættis FIDE fyrir skemmstu í Kongsvinger í Noregi.

Ég hef mikið verið í praktískum hlutum. Pantað flug, hjálpað til við vegabréfsáritanir, fjáröflun, verðið í sambandi við mótshaldara o.þ.h. fyrir íslenska hópinn. Alltaf nóg að gera í aðdragenda Ólympíuskákmóta.

Undirbý mig andlega fyrir mikinn hita á skákstað. Bæði á þinginu og ekki síður í Chennai! 

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

Mig minnir að talan sé 74. Hún hækkar a.m.k. jafnt og þétt!

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Fór sem liðsstjóri til Mallorca 2004. Síðan 2010 hef ég farið sem forseti SÍ. Chennai verður mitt sjöunda Ólympíuskákmót. Ólympíuskákmót eru alltaf veisla. 

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Aldrei má vanmeta gamalt stórveldi.

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Bandaríkin hafa ógurlegt lið í opnum flokki. Spái þeim sigri. Indverjar auðvitað líka líklegir á heimvelli. Úkraínukonur er líklegar til sigurs í kvennaflokki. Hvorki Rússar né Kínverjar taka þátt í ár. 

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Datt í Stranger Things eftir endurnýjaðar vinsældir Running Up That Hill með Kate Bush. Ég er reyndar það gamall að ég man eftir laginu þegar það var upphaflega vinsælt! Hef mikinn áhuga á eighties-tímabilinu eins og margir vita.

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Ólíklegra en ekki. Tel líkurnar á að hann tefli vera u.þ.b. 20-30%. 

Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:

Ólympíuskákmótið í Khanty-Mansiysk er mér afar minnisstætt. Þá gekk mikið á hinu skákpólítíska sviði. Kasparov fór mikinn. Ég var jafnframt liðsstjóri kvennaliðsins vegna óvæntra forfalla liðsstjórans með skömmum fyrirvara. 

Oft verið mikill rússibani að fylgjast með skákum Jóhönnu Bjargar. Stundum verið með grúttapað en nokkru síðar búin að tryggja sér sigur. Held að minnistæðasta skákin sé samt skák Lenku og Evu Repkovu frá Ólympíuskákmótinu 2010. Lenka vann þar glæsilegan sigur. Skákin var kjörin skák ársins 2010. 

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Góður bara. Vona að hann verði ekki of sterkur og ekki too much rice and curries! Sennilega óraunhæfar væntingar!

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Tel líklegast að Arkady Dvorkovich verði endurkjörinn. 

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Hlýtur að vera Ghandi.

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Anatoly Karpov, Bobby Fischer og Garry Kasparov. Myndi vilja fara yfir það með Karpov og Fischer hvor hefði unnið heimsmeistaraeinvígið 1975. Ekki verra að fá svo álit Kasparovs á því!

Ólympíufararnir

  • GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
  • GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
  • IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
  • GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
  • WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
  • WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
  • Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
  • WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
  • GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
  • FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
  • IA Omar Salama (skákstjóri)
  • Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
- Auglýsing -