Hilmir Freyr Heimisson vann sigur á afmælismóti Skolernes-skákklúbbsins sem lauk í gær í Árósum. Lenka Ptácníková endaði í öðru sæti á alþjóðlegu móti í Prag. Helgi Áss Grétarsson og Vignir Vatnar Stefánsson gerðu jafntefli í gær í Slóvakíu. Lokaumferðin fer fram í dag. Héðinn Steingrímsson hefur taflmennsku kl. 14 í dag á NM í skák.
Skolernes 50 ára afmælismót
Hilmir Freyr Heimisson (2281) gerði jafntefli við hollenska FIDE-meistarann Jonas Hilwerda (2275) í níundu og síðustu umferð 50 ára afmælismóts Skolernes-skákklúbbsins í gær. Hilmir hlaut 7 vinninga og varð einn efstur með sjö vinninga
Björn Hólm Birkisson (2095) vann danska FIDE-meistarann Poul Rewitz (2242) í lokaumferðinni. Björn Hólm hlaut 4 vinninga og endaði í 15.-17. sæti.
Frammistaða Hilmis samsvaraði 2458 skákstigum og hækkar hann um 42 stig fyrir hana! Björn Hólm hækkar um 16 stig fyrir sína frammistöðu.
22 keppendur tóku þátt og þar af 1 stórmeistari og 2 alþjóðlegir meistarar. Mótið fór fram 11.-17. júlí.
- Heimasíða mótsins
- Úrslitaþjónusta
- Engar beinar útsendingar
Zlata Praha Open
Adam Omarsson (1794) vann í níundu og síðustu umferð sem fram fór í gær. Lenka Ptácníková (2066) gerði jafntefli en Jósef Omarsson (1606) tapaði.
Lenka hlaut 7 vinninga og endaði í öðru sæti á mótinu, Adam hlaut 5½ vinning og Jósef fékk 4½ vinning.
Öll hækka þau á stigum. Adam um 43 stig, Jósef um 11 stig og Adam um 4 stig.
34 skákmenn frá 5 löndum tóku þátt í mótinu. Mótið fór fram 9.-17. júlí.
Slovakia Open Piestany
Áttunda og næstsíðast umferð fór fram í gær.
Helgi Áss Grétarsson (2472) og Vignir Vatnar Stefánsson (2461) gerðu báðir jafntefli í gær. Alexandr Domalchuk-Jonasson (2246) tapaði sinni skák.
Helgi Áss hefur 5 vinninga, Vignir Vatnar hefur 4½ vinning og Aleksandr hefur 3 vinninga.
Lokaumferðin hefst kl. 8 í dag.
64 skákmenn frá 13 löndum taka þátt og þar á meðal sjö stórmeistarar. Mótið fer fram 11.-18. júlí.
Ciudad de Sevilla
Önnur og þriðja umferð fóru fram í gær.
Alexander Oliver Mai (2159) hefur 2 vinninga eftir 3 umferðir. Í fyrstu tveimur umferðunum vann hann tvo stigalága andstæðinga (1585-1891). Í þriðju umferð tapaði fyrir indverskum alþjóðlegum meistarara (2443).
Þátt taka 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af eru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 16.-23. júlí.
NM í skák
Norðurlandamótið í skák fer fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið er haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins.
Héðinn Steingrímsson (2513) verður fulltrúi Íslands í opnum flokki og er áttundi í stigaröð keppenda. Næststigahæstur Norðurlandabúa.
Fyrsta umferð mótsins hefst kl. 14 í dag.
Alls eru 138 skákmenn frá 16 löndum skráðir til leiks í opnum flokki. Þar af 10 stórmeistarar og jafn margir alþjóðlegir meistarar.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast ýmist kl. 7, 9 eða 14).
















