Frá NM í skák. Mynd: Heimasíða mótsins.

Héðinn Steingrímsson vann í gær á NM í skák í Finnlandi og hefur 3½ vinning eftir 4 umferðir. Tvær umferðir fara fram í dag. Alexander Oliver Mai vann sína skák í Sevilla. Gauti Páll Jónsson gerði jafntefli við stórmeistara á atskákmóti í Pardubice.

NM í skák

Fjórða umferð fór fram í gær.

Héðinn Steingrímsson (2513) vann finnska FIDE-meistarann Markus Joukhi Yrjö (2280). Héðinn hefur 3½ vinning og er deildu sæti öðru sæti ásamt 13 öðrum.

Tvær umferðir fara fram í dag. Héðinn mætir finnska alþjóðlega meistaranum Mika Karttunen (2484) í fyrri umferð dagsins. Umferðir dagsins hefjast kl. 7 og 14.

Norðurlandamótið í skák fer fram í Jyväskylä í Finnlandi dagana 18.-24. júlí. Mótið er jafnframt alþjóðlega mótið Heart of Finland og er opið öðrum en Norðurlandabúum. Mótið er haldið í Finnlandi í tilefni af 100 afmæli sambandsins. Þátt taka 138 skákmenn frá 14 löndum. Þar af eru 10 stórmeistarar og 9 alþjóðlegir meistarar. Tefldar eru 9 umferðir.  Héðinn er áttundi í stigaröð keppenda og næststigahæstur Norðurlandabúa.

Björgvin Jónas Hauksson (1739) gerði jafntefli í gær í flokki öldunga og hefur hálfan vinning.

Ciudad de Sevilla

Sjötta umferð fór fram í gær.

Alexander Oliver Mai (2159) vann í gær Spánverja (1965) og hefur 4 vinninga.

Í sjöundu umferð, sem fram fer í dag, teflir hann spænska alþjóðlega meistarann Juan Plazuelo Pascual (2448).

Þátt taka 177 skákmenn frá 20 löndum og þar af eru 6 stórmeistarar og 19 alþjóðlegir meistarar. Mótið fer fram 16.-23. júlí. Tefldar eru 9 umferðir.

Czech Open

Gauti Páll Jónsson (2043) hóf í gær þátttöku á atskákmóti sem er hluti Czech Open hátíðarinnar.

Gauti hefur 2½ að loknum þremur umferðum. Hann gerði jafntefli við króatsíska stórmeistarann Bogdan Lalic (2441) í gær. Síðustu sex umferðirnar fara fram í dag.

Kappskákmótin hefjast svo á morgun. Þar taka fjórir Íslendingar þátt.

- Auglýsing -