Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!
Í dag kynnum við til leiks Ingvar Þór Jóhannesson sem er liðsstjóri kvennaliðsins.
Nafn
Ingvar Þór Jóhannesson einnig þekktur sem Zibbit, Xzibit, Biteman og Bitinn
Félag
Taflfélag Reykjavíkur, Þróttur í boltanum og West Ham í enska
Aldur
45 ára en 18 max í þroska
Uppáhaldsskákmaður og skákkona?
Carlsen og Polgar
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Reyna að vera þokkalega inni í byrjunum til að geta hjálpað í undirbúningi. Tók líka strategíska sólarlandaferð nýlega til að aðlagast hitanum 😉
Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Ég man eftir 67. stórmeistaranum fyrir allnokkru en manni finnst þeir alltaf bæta í. Ætla að giska á 71.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður fjórða mótið, fór fyrst í Tromsö 2014.
Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?
Þeir eru á réttri leið en ég ætla samt að segja nei, með eða án CR7
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Eiginlega skandall ef Bandaríkjamenn vinna ekki opna flokkinn. Úkraína hefur svo kvennaflokkinn eftir baráttu við Georgíu.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Skelli reglulega í Seinfeld þætti og það er síðasta sem ég kíkti á.
Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?
Vonandi, ég held það en ekki jafn öruggur á því og fyrir kannski 2 vikum.
Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:
Sú ferskasta í kollinum núna er Tiger Hillarp gegn Litháanum Laurusas frá ÓL 2018, mögnuð skák þar sem andi Short-Timman svífur yfir vötnum!
Hvítur á leik!
Hvernig finnst þér indverskur matur?
Almennt mjög hrifinn af sterkum mat og indverskum. Óttast þó eilítið fylgifiska slíkrar matargerðar en vonandi verður lítið um það!
Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?
Dvorkovich
Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?
Er ekki Gandhi öruggasta svarið 😉
Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?
Eigum við ekki að fræðast aðeins um sóknarskák og fá bara Tal, Nezhmetdinov og höfum Sultan Khan með af því mótið er á Indlandi 😉
Ólympíufararnir
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
- GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
- GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
- WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
- WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
- GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
- IA Omar Salama (skákstjóri)
- Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
















