Íslenska sveitin í opnum flokki vann sigur, 2,5-1,5, gegn Bangladesh í 9. umferð Ólympíuskákmótsins. Guðmundur Kjartansson vann öruggan sigur með hvítu mönnunum. Enn einn sigurinn hjá Guðmundi sem hefur staðið sig vel á mótinu til þessa. Aðrar skákir enduðu með jafntefli, hjá Hjörvari, Hannesi og Helga. Mesta spennan var í skák Hjörvars sem var síðust að klárast. Hjörvar hafði verið peði undir og báðir keppendur nokkuð tæpir á tíma. Andstæðingur Hjörvars fór út í flækjur en hafði ekki séð jafn langt og okkar maður. Í framhaldinu átti hann ekkert meira en þráskák og með því var sigurinn tryggður.
Íslenska sveitin í kvennaflokki tapaði full stórt gegn sterkri sveit Brasilíu, 0-4. Lenka, Jóhanna Björg og Hallgerður Helga urðu allar undir í flækjunum í miðtaflinu í sínum skákum. Ljósi punkturinn í viðureigninni var vönduð taflmennska Liss sem hafði yfirspilað andstæðing sinn á 4. borði stöðulega eftir öllum kúnstarinnar reglum – en lék því miður illa af sér og tapaði.
Andstæðingar Íslands í 10. umferð, sem fram fer mánudaginn 8. ágúst, verða Grikkland í opnum flokki og Púertó Ríkó í kvennaflokki.
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)















