Dvorkovich og Anand fagna sigri..

Rússinn Arkady Dvorkovich var rétt í þessu endurskjörinn forseti FIDE. Dvorkovich og varaforsetaefni  hans, indverski stórmeistarinn, Vishy Anand fengu 157 atkvæði af 179 mögulegum.

Úkraínumaðurinn Andrii Baryshpolets og meðframbjóðandi hans, Daninn Peter Heine-Nielsen fengu 16 atkvæði.

Í ræðum fyrir kosningarnar tilkynnti Frakkinn Bachar Kouatly að hann gæfi ekki kost á sér.

Sigur Dvorkocich kemur alls ekki á óvart en það hversu stór sigurinn hann var kom óneitanlega á óvart.

- Auglýsing -