Íslenska sveitin í kvennaflokki vann öruggan 3-1 sigur á Púertó Ríkó í 10. umferð Ólympíuskákmótsins í Indlandi.
Jóhanna Björg og Tinna Kristín voru fyrstar til þess að vinna sannfærandi sigra, báðar með svörtu, á 2. og 4. borði. Eftir rólega byrjunartaflmennsku sýndi styrkleikamunurinn sig og þær yfirspiluðu andstæðinga sína. Hallgerður Helga fylgdi á eftir með traustum sigri með hvítu mönnunum á 3. borði og þar með sigur í viðureigninni tryggður. Lenka lenti í vandræðum í flækjum í miðtafli og þurfti að verjast með hrók og biskup gegn drottningu í erfiðu endatafli. Það gekk því miður ekki og tapaði Lenka skákinni að lokum. Góður 3-1 sigur hjá íslensku sveitinni.
Íslenska sveitin í opnum flokki háði jafna og spennandi viðureign gegn Grikklandi. Hjörvar var fyrstur að klára með jafntefli á 1. borði. Hannes fylgdi á eftir með jafntefli á 2. borði. Vonir stóðu til að Hannes hefði einhverja möguleika á því að tefla til vinnings, eftir að hafa jafnað taflið örugglega eftir byrjunina. Hannes náði þó ekki að gera sér mat úr þeim litlu yfirburðum sem hann hafði. Þá stóðu eftir Guðmundur og Helgi. Guðmundur var peði yfir með vinningsmöguleika en Helgi var með hartnær tapað. Með ótrúlegri seiglu náði Helgi að koma sér aftur inn í skákina og hafði um tíma möguleika á jafntefli – og jafnframt þurfti andstæðingur hans að stíga varlega til jarðar því Helgi hafði ofið mátnet í kringum kóng Grikkjans. Að lokum náði Guðmundur ekki að nýta umframpeðið sitt og Helgi varð að játa sig sigraðan eftir langa og harða baráttu. Lokatölur 1,5-2,5 tap gegn Grikkjum.
Í lokaumferðinni, sem fram fer á morgun, mætir íslenska sveitin í opnum flokki Búlgaríu en kvennasveitin mætir Sviss.
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)
















