Íslenska sveitin í opnum flokki hafði sigur á Búlgaríu, 2,5-1,5, í lokaumferð Ólympíuskákmótsins í Indlandi. Margeir Pétursson, liðsstjóri, skipti sér inn á fyrir umferðina og vann öruggan sigur með hvítu mönnunum á 4. borði. Guðmundur Kjartansson missti niður vænlegt hróksendatafl í jafntefli á 3. borði og Hjörvar Steinn tapaði á 1. borði. Það kom því í hlut reynsluboltans Hannesar Hlífars að sigla sigrinum heim og það gerði hann eftir meira en 100 leikja taflmennsku. Saumaði jafnt og þétt að Búlgaranum og tryggði sigurinn.

Íslenska sveitin í kvennaflokki tapaði 1,5-2,5 gegn Sviss. Jóhanna Björg og Liss töpuðu sínum skákum með svörtu mönnunum á 2. og 4. borði. Hallgerður Helga vann góðan sigur á 3. borði með baráttuþreki, eftir að hafa staðið frammi fyrir miklum þrengingum eftir byrjuninni. Lenka Ptácniková stóð höllum fæti á 1. borði en náði jafntefli með mikilli baráttu. Það dugði því miður ekki til og tap staðreynd.

Gengi íslensku sveitanna var upp og niður allt mótið.
Í opnum flokki endaði Ísland í 25.-42. sæti með 14 matchpoint, 40. sæti á stigum. Sveitin var í 43. sæti á stigum við upphaf mótsins. Fínn árangur hjá liðinu.
Í kvennaflokki endaði Ísland í 66.-89. sæti með 11 matchpoint, 79. sæti á stigum. Sveitin var í 61.sæti á stigum við upphaf mótsins. Sveitin náði sér aldrei almennilega á skrið í mótinu.
Aflahæstu liðsmenn íslensku sveitanna voru Hannes Hlífar Stefánsson og Guðmundur Kjartansson, báðir með 7 vinninga af 10 í opnum flokki, ásamt Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttir sem fékk 6,5 vinning af 10 fyrir íslenska liðið í kvennaflokki.

Einungis einn liðsmaður íslensku sveitanna endaði í plús á stigum. Guðmundur Kjartansson hækkar um +8 stig fyrir frammistöðu sína. Aðrir liðsmenn sveitarinnar í opnum flokki og allir liðsmenn kvennasveitarinnar lækka á stigum.

Úsbekistan vann Ólympíugullið í opnum flokki. Sveitin endaði jöfn þeirri armensku en mun hærri á mótsstigum. Sögulegur árangur hjá Úsbekum sem er skipuð ungum og efnilegum skákmönnum. Ivan Sokolov þjálfari þeirra getur verið mjög stoltur af frammistöðunni og skákáhugamenn hafa gert að því skóna að hann verði aðlaður í landinu!

Úkraína hafði sigur í kvennaflokki eftir sviptingar í lokaumferðinni. Indland stóð vel og hafði leitt mótið fram að lokaumferðinni en varð fótaskortur gegn Bandaríkjunum á ögurstundu. Úkraína og Georgía enduðu jafnar í efstu sætunum en sveit Úkraínu hærri á mótsstigum. Michail Brodsky var liðsstjóri sveitarinnar.

Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar

  1. Hjörvar Steinn Grétarsson
  2. Hannes Hlífar Stefánsson
  3. Guðmundur Kjartansson
  4. Helgi Áss Grétarsson
  5. Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)

Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.

Kvennaliðið

  1. Lenka Ptácníková
  2. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
  3. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  4. Lisseth Acevedo Mendez
  5. Tinna Kristín Finnbogadóttir

Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson

Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.

- Auglýsing -