Íslenskir skákmenn sitja sem fyrr úti að tafli. Gauti Páll tekur þátttöku á EM áhugamanna í Zagreb og Adam og Jósef tefla í Olomouc í Tékklandi
EM áhugamanna
EM áhugamanna fer fram í Zagreb í Króatíu dagana 14.-21. ágúst. Gauti Páll Jónsson (2071) teflir í flokki skákmanna með minna en 2300 skákstig.
Gauti gerði jafntefli í báðum skákum gærdagsins við skákmenn á stigabilinu 2143-2208.
Gauti hefur 2½ vinning að loknum fjórum umferðum og er í 11.-17. sæti.
Fimmta umferð fer fram í dag og verður Gauti í beinni.
Gauti er nr. 23 í stigaröð 50 keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Olomouc Chess Summer
Bræðurnir Adam (1837) og Jósef Omarssynir (1617) taka þátt í c-flokki Olomouc Chess Sumer sem fram fer 13.-20. ágúst.
Adam vann í gær en Jósef tapaði. Adam hefur 3 vinninga en Jósef hefur 2 vinninga.
Sjötta umferð fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 14)















