FIDE-meistarinn Dagur Ragnarsson (2352), stórmeistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2463) og stórmeistari kvenna Lenka Ptácníková (2070) eru efst og jöfn með 4 vinninga að lokinni fimmtu umferð Skákþings Garðabæjar sem fram fór í gær.
Lenka vann Dag sem hafði fullt hús fyrir umferðina. Hjörvar Steinn vann sigurvegara síðasta þriðjudagsmóts TR, Arnar Milutin Heiðarsson (2020).
Sjötta og næstsíðasta umferð mótsins fer fram á mánudagskvöldið. Þá mætast meðal annars:
- Hjörvar (4) – Lenka (4)
- Dagur (4) – Alexander Oliver (3½)
- Sigurjón Haraldsson (3½) – Lisseth Acevedo Mendez (3½)
Alls taka 24 skákmenn þátt í mótinu.
- Auglýsing -
















