Fjölnisstúlkur að tafli

Alls 16 keppendur frá Skákdeild Fjölnis taka nú um helgina þátt í Kvibergsspelen skákmótinu í Gautaborg. Um 200 skákmenn og skákkonur á öllum aldri og stigum taka þátt í mótinu. Það vekur athygli að 12 af skákmönnum Fjölnis á mótinu eru kvenkyns eða 75%. Teflt er í tveimur flokkum og skiptingin miðuð við yfir eða undir 1600 ELO stig.

Liss að tafli við Jonny Hector.

Sex liðsmenn Fjölnis eru í efri flokknum og unnu þau 16 skákir af 24 í fyrstu fjórum umferðunum. Fimm þeirra hækkuðu á stigum og þar mest Lisseth A. Mendez sem hækkaði um 27,4 stig.

Í stigalægri flokknum (Lilla Kvibergsspelen) eiga Fjölnismenn 10 þátttakendur, þar af 9 stúlkur á aldrinum 9 – 12 ára. Þær unnu sér fyrir Svíþjóðarferðinni með veitingasölu á Íslandsmóti skákfélaga 2021 – 2022. Flestar að stíga sín fyrstu spor á alþjóðlegu skákmóti en ábyggilega ekki þau síðustu.

 

- Auglýsing -