
Á umdæmisþingi Rótarý á Íslandi 8. október veitti Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis og umsjónarmaður skákstarfs í Rimaskóla viðtöku viðurkenningu Verðlauna-og styrktarsjóðs Rótarýhreyfingarinnar. Viðurkenningunni fylgir verðugur fjárstyrkur sem nýtist vel Skákdeild Fjölnis sem býður börnum og unglingum eingöngu upp á ókeypis skákæfingar, skákviðburði, og ferðalög.
Rótarý Grafarvogur hefur á undanförnum árum stutt skákstarfið í hverfinu gríðarlega vel, gefið verðlaunagripi og taflsett. Skákdeild Fjölnis hefur frá upphafi 2004 lagt áherslu á barna-og unglingastarf með eftirtektarverðum árangri. Skákdeildinni hefur áður hlotnast heiður fyrir fyrirmyndar félagsstarf, m.a. Máttarstólpann, viðurkenningu Íbúasamtaka Grafarvogs,. Barnamenningarverðlaun Velferðarsjóðs barna, styrk frá Jafnréttissjóði tvö ár í röð, Samfélagsstyrk Baugs og verkefnisstyrk Sprotasjóðs.
Allur þessi heiður og stuðningur hefur eflt skákstarfið í Grafarvogi í átt jafnréttis og þeirra sem eiga við náms-og einbeitingarerfiðleika að stríða.
Skákdeild Fjölnis og Rimaskóli vilja þakka Rótarýhreyfingunni á Íslandi óvæntan en ánægjulegan veittan heiður.














