Íslandsmót barna- og unglingasveita (taflfélaga) 2022 fer fram laugardaginn, 26. nóvember í Miðgarði nýja fjölnotaíþróttahúsinu í Garðabæ. Taflmennskan hefst kl. 14 á 2 hæð.

Boðið verður upp á 3. flokka:
A flokkur. Sigurvegari þessa flokks er Íslandsmeistari. 7. umf.
B flokkur. Miðað við meðalstig 1100 eða minna. 5-7 umf.
C flokkur Meðlimir sveita eru í 1-3 bekk. Allt að 5. umf

Mótið er fyrir skákmenn fædda 2007 og síðar.
Tímamörk verða 8 min + 3 sek.

Þátttökugjöld eru 6.000 kr. fyrir A lið og 3.000 kr. fyrir hvert lið eftir það. Hámarksgjald fyrir félag er 20.000. kr

Mótið (A flokkur) verður reiknað til alþjóðlegra atskákstiga. A og B lið hvers félags tefla saman í fyrstu umferð séu þau í sama flokki

Skráningarfrestur liða þarf að skila inn eigi síðar en kl. 23:59 fimmtudaginn 24. Nóvember.

Verðlaun og oddastig

Veitt verða verðlaun fyrir þrjár efstu sveitirnar í a-flokki, b-flokki og c-flokki
*Oddastig séu sveitir jafnar að vinningum

  1. Stig (match point)
  2. Innbyrðis viðureign
  3. Sonneborn-Berger
  4. Hlutkesti
- Auglýsing -