Sigurlið TR Unglingasveit Taflfélags Reykjavíkur vann Íslandsmót unglingasveita í Garðabæ um daginn. Frá vinstri. Adam Omarsson, Ingvar Wu Skarphéðinsson, Iðunn Helgadóttir og Jósef Omarsson. — Ljósmynd/Jóhann H. Ragnarsson

Skákmenn eiga oft góðar minningar um mót þar sem engin skák tapast, enda er sú tilvitnun fræg, eignuð Tigran Petrosjan, að betra sé að gera þrjú jafntefli en að vinna tvær skákir og tapa einni. Greinarhöfundur komst eitt sinn í gegnum mót í gömlu Sovétríkjunum án þess að tapa skák en jafnteflin voru að vísu nokkuð mörg, einn sigur og 12 jafntefli! En ég hef ekki rekist á mót þar sem annar Vesturlandabúi náði því að fara taplaus í gegnum lokað mót í Sovét. Ferðafélagi minn, Jón L. Árnason, var einnig öryggið uppmálað en tapaði þó einni skák. Við flugum út með einkavél sovéska landsliðsins í knattspyrnu sem hafði gert jafntefli, 1:1, við Ísland í landsleik á Laugardalsvelli. Liðsmenn sátu aftar í vélinni en fararstjórar og þjálfarar framar. Strax eftir flugtak rifu þeir upp vodkaflösku og fengu nokkrum klukkustundum síðar mjúka lendingu á Sheremetyevo-flugvellinum í Moskvu. En leið okkar Jóns lá áfram á minningarmót um Chigorin í Sochi við Svartahaf. Þar sigraði Sergei Dolmatov en við Jón lentum í 4.-7. sæti af 14 keppendum.

Hálfu öðru ári síðar tefldi Margeir Pétursson í Wijk aan Zee, og fékk sömu niðurstöðu; gerði 12 jafntefli og vann eina skák. Það dugði í 4.-6. sæti en neðar komu kappar á borð við Kortsnoj, Anand og Short. Sigurvegari varð John Nunn en í viðureign Margeirs við Nunn, sem á dögunum varð heimsmeistari öldunga, 65 ára og eldri, stóð persónulegur byrjanastíll Margeirs af sér allar atlögur Englendingsins. Þar kom fyrir afbrigði eða öllu heldur uppbygging stöðu kennd við ungverskan stórmeistara, Geza Maroczy. Nafn Ungverjans, sem lést árið 1951, var skyndilega á allra vörum hér á landi haustið 1988 þegar upplýst var að Viktor Kortsnoj, sem hingað var kominn til þátttöku á skákmóti, hefði nýlega teflt við Maroczy gegnum þýskan miðil sem flutti leikina milli þessa heims og annars:

Wijk aan Zee 1990; 1. umferð:

John Nunn – Margeir Pétursson

Sikileyjarvörn

1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Rf6 6. Rc3 d6 7. Rc2 Bg7 8. Be2 Rd7 9. Bd2 a5 10. 0-0 0-0 11. Hc1 Rc5 12. b3 Rb4!

– Sjá stöðumynd 1 –

Peðsfórn hvíts er vel þekkt í þessu afbrigði með skiptum litum. En leikur svarts setur hvítan í talsverðan vanda því að 13. a3 má svara með 13. … Bxc3! 14. Bxc3 Ra2! o.s.frv.

13. Hb1 Bxc3 14. Bxc3 Rxe4 15. Bb2 Rxc2 16. Dxc2 Rc5 17. Hbd1 b6 18. f4 Bf5 19. Dc3 f6 20. De3 Dd7 21. Bf3 Hae8 22. h3 Dc7 23. g4

Eilítið betri færi var að hafa með 23. Bd5+ e6 24. Bf3 og síðan -Hd2 með sókn að d6-peðinu.

23. … Bc8 24. g5

Reynir ákaft að opna fyrir biskupinn á b2.

24. … Bb7 25. Bd5+ Bxd5 26. cxd5 Dd7 27. f5 gxf5 28. Hd2 ( STÖÐUMYND 3 )

 

 

 

 

28. … e5

Hvítur hugðist flytja hrókinn yfir til g2. Eftir þennan leik er staðan í jafnvægi en að mati „vélanna“ hefði betri vinningsmöguleika mátt finna með hreint ótrúlegum leik, 28. … h6! Eftir 29. gxh6 kæmi 29. … Kh7 með góðum vinningsfærum á svart. 29. Hg2 er einnig svarað með 29… Kh7!

29. dxe6 Dxe6 30. Dxe6 Hxe6 31. gxf6 Kf7 32. Hg2 Hg8 33. Hxg8 Kxg8 34. Hxf5 He1+ 35. Hf1

Alls ekki 35. Kg2 He2+ 36. Hf2 Hxf2+ ásamt 37. … Rd3+ og biskupinn fellur.

35. 35. … Hxf1+ 36. Kxf1 Kf7 37. Ke2 Re4 38. Bd4 b5 39. Kd3 Rxf6 40. a4 bxa4 41. bxa4 d5 42. Bc3 Re4 43. Be1 Rc5

– Jafntefli.

Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is u.þ.b. viku eftir að þeir birtast í Morgunblaðinu. Skákþáttur þessi birtist 10. desember 2022

- Auglýsing -