HM í hraðskák hófst kl. 9 í morgun. Í dag eru tefldar fyrstu 11 umferðirnar af 21 í opnum flokki og fyrstu 9 af 17 í kvennaflokki.

Bein lýsing

Meðal keppenda eru flestir sterkustu skákmenn heim. Þar á meðal Magnús Carlsen, Hikaru Nakamura, Fabiano Caruana, Ian Nepomniachiatchi og núverandi heimsmeistari, Nodirbek Abdusattorov.  Í kvennaflokki má finna flestar sterkustu skákkonur heims. Alexandra Kosteniuk, Kateryna Lagona, Tan Zhongyi og Aleksandra Goryachkina.

- Auglýsing -