Stórmeistarinn Margeir Pétursson (2437) gerði jafntefli við ísraelska FIDE-meistarann Yotam Shohat (2294) í 2. umferð Rilton Cup sem fram fór í gær. Margeir hefur 1½ vinning. Þriðja umferð fer fram í dag og þá teflir Margeir við spænska FIDE-meistarann Miguel Ruiz Buendia (2257).
Alls tefla 136 keppendur í efsta flokki hátíðinnar og þar af 20 stórmeistarar. Margeir er nr. 35 í stigaröð keppenda.
Bræðurnir Adam (1693) og Jósef Omarssynir (1539) tefla í Rilton Elo sem er fyrir stigalægri keppendur. Jósef vann en Adam gerði jafntefli í annarri umferð. Báðir hafa þeir 1 vinning.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14:15)
- Auglýsing -



















