Þriðja umferð Skákþings Reykjavíkur fór fram í gær. Þrír skákmenn eru á toppnum með fullt hús. Tveir þeirra unnu umtalsvert stigahærri andstæðinga. Efstir eru Arnar Milutin Heiðarsson (2032), sem vann Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2352), Davíð Kjartassson (2293) sem lagði Pétur Pálma Harðarson (2095) að velli og Jóhann H. Ragnarsson (1900) sem hafði betur gegn Alexander Oliver Mai (2119).
Töluvert var um óvænt úrslit. Auk sigra Arnars og Jóhanns má nefna að Adam Omarsson (1693) gerði jafntefli við Benedikt Briem (2100) Sigurður Páll Guðnýjarson (1517) hafði sigur á Matthíasi Björgvini Kjartanssyni (1759).
Úrslit 3. umferðar má finna á Chess-Results.
Fjórða umferð fer fram á miðvikudagskvöldið.
- Auglýsing -
















