Skákæfingar fyrir fullorðna, nánar tiltekið 16 ára og eldri, fara af stað að nýju nú á nýja árinu.
Haldnir eru hálfsmánaðarlegir fyrirlestrar. Æfingarnar hefjast klukkan 19:30 og þeim lýkur um klukkan 21:30. Fyrirlestur verður í klukkutíma og teflt í klukkutíma. Ingvar Þór Jóhannesson mun hafa yfirumsjón með æfingunum en einnig verða fengnir gestafyrirlesarar. Ekki er tekið við skráningum í þessar æfingar, heldur mun kosta 1000kr. á hvern fyrirlestur og eru allir velkomnir.
Fyrirlestrarnir fara fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, Faxafeni 12.
Fyrsta æfingin árið 2023 verður fimmtudagskvöldið 19. janúar.
Skákmenn geta skráð sig á póstlista æfinganna þar sem sendur verður tölvupóstur hálfsmánaðarlega með áminningu um æfingar vikunnar.
Dagskráin:
19. janúar
2. febrúar
16. febrúar
2. mars
16. mars
30. mars
13. apríl
27. apríl
11. maí
25. maí















