Hannes að tafli á EM í hrað- og atskák fyrir skemmstu.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2526) gerði jafntefli við svissneska alþjóðlega meistarann Gabriel Gaehwiler (2408) í 3. umferð Marienbad Open í Tékklandi í gær. Hannes hefur 1½ vinning.

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri er nú í gangi og þar teflir hann við tékkneska stórmeistarann Martin Petr (2508). Í síðari umferð dagsins teflir við Hannes við Indverjann Chullikkad Adithya (2196).

Hannes teflir í 10 manna flokki þar sem meðalstigin eru 2403 skákstig. Hannes er stigahæstur keppenda.

 

- Auglýsing -