Fabiano Caruana vann Jorden van Foreest í 3. umferð Tata Steel-mótsins sem fram fór í Wijk aan Zee í gær. Öðrum skákum lauk með jafntefli. Þar með er Fabi kominn í hóp efstu manna með 2 vinninga. Ásamt honum eru Magnus Carlsen, Anish Giri, Ding Liren og Nodirbek Abdusattorov á toppnum.
♟| Fabiano Caruana is the only one who managed to win in the Masters and after 7 hours, the game between Eline Roebers and Max Warmerdam ended in a draw. Fabi now joins the four leaders at the top of the leaderboard. #TataSteelChess pic.twitter.com/0va3fAufH9
— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 16, 2023
Fjórða umferð fer fram í dag. MC teflir við Anish Giri.
Áskorendaflokkur (Challangers)
Ákaflega hörð barátta. Sex keppendur eru á toppnum með 2 vinninga.
Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13:15)















