
Anish Giri vann Magnús Carlsen í 4. umferð Tata Steel-mótsins í gær. Fyrsti sigur Hollendingsins á heimsmeistaranum í 12 ár, upp á dag, í kappsák! Nodbirek Abdusattorv er efstur með 3 vinninga ásamt Giri eftir sigur á Írananum Parham Maghsoodloo. Indverjinn geðþekki og Íslandsvinurinn, Praggnanandha, vann næststigahæsta skákmann heims, Ding Liren. Pragga og Fabiano Caruana eru í 3.-4. sæti með 2½. Carlsen er í 5.-9. sæti með 2 vinninga.
Ítarlega frétt þar sem finna má meðal annars skák MC og Giri skírða má finna á Chess.com.
♟| With Pragg and Erwin l’Ami winning the last games of the round after almost 7 hours, the 4th round concludes.
Giri and Abdusattorov also won their games, which leaves them at the top of the Masters leaderboard! #TataSteelChess pic.twitter.com/huV2ymT7Yc— Tata Steel Chess (@tatasteelchess) January 17, 2023
The world champion resigns, a scene spectators rarely see in classical chess.@anishgiri wins a game he will likely never forget, in his home country, and currently leads the tournament with 3/4. #TataSteelChess pic.twitter.com/7EE00FgflX
— ChesscomLive (@ChesscomLive) January 17, 2023
Frídagur er í dag. Fimmta umferð fer fram á morgun. Þá mætast meðal annars Carlsen-Abdusattorov og Pragga-Giri.
Áskorendaflokkur (Challangers)
Mustafa Yilmaz (2609), Velimir Ivic (2585) og Alexander Donchenko (2627) eru efstir með 3 vinninga. Það er teflt í áskorendaflokki í dag.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13:15)

















