AFmælisbarnið ásamt þeim CAD-bræðrum.

Keppendamet Chess After Dark var slegið í gærkvöldi þegar að 50 manns mættu á Barion Mosó að taka þátt á móti númer 2 af 5 í Barion Mótaröðinni.

Kvöldið einkenndist af miklum hraða, spennu og fyrst og síðast mikilli gleði!

Tefldar voru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.

Þar sem að okkar allra efnilegasti skákmaður Vignir Vatnar Stefánsson hélt upp á tvítugsafmæli sitt í gærkvöldi ákvað Óli Valur styrktaraðili mótsins að bjóða keppendum upp á afmælisköku, og að sjálfsögðu var afmælissöngurinn tekinn fyrir afmælisbarnið.

Fór það svo að afmælisbarnið Vignir Vatnar og Hannes Hlífar enduðu efstir og jafnir með 9v/11 og tefldu Armageddon skák upp á sigur í mótinu, þar sem Vignir valdi svart og tók sigur.

Hjörvar Steinn endaði í þriðja sæti með 8 vinninga.

Í 4-6 sæti með 7.5 vinning voru Aleksandr Domalchuk, Sigurbjörn Björnsson og Helgi Áss.

Lokastaðan

Aukaverðlaunahafar:

U2000: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir

U1600: Sigurður Heiðar Höskuldsson

Chess After Dark þakkar öllum keppendum fyrir komuna – hlökkum til að sjá ykkur 7. mars!

 

Bestu kveðjur,

 

CAD bræður

 

 

- Auglýsing -