Það styttist í 37. Reykjavíkurskákmótið sem fram fer 29. mars – 4. apríl í Hörpu. Nú eru 341 skákmenn skráður til leiks en til samanburðar tóku 245 skákmenn þátt í fyrra.
Íslenskir skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst þar sem ekki er útilokað að það komi til þess að takmarka þurfi þátttöku á mótinu vegna plássleysis.
Til að finna út þátttökugjöld Íslendinga má finna þátttökugjöldin hér. Þar sem Íslendingar fá evruna á sérkjörum má margfalda upphæðina með 100 og leggja inn á 101-26-12763, kt. 580269-5409. Senda kvittun á skaksamband@skaksamband.is
Úkraínski stórmeistarinn Vasyl Ivanchuk (2664) hefur skráð til leiks og er það mikið ánægjuefni. Hann tók þátt í Heimsbikarmóti Flugleiða árið 1991 og vann mótið! Hann hefur ekki teflt á einstaklingsmóti á Íslandi síðan þá en tók þátt á EM landsliða árið 2015.
Heimasíða Reykjavíkurskákmótsins
















