Rúmlega 40 skákmenn mættu til leiks á þriðja mótið í mótaröð Bankans Bistro (áður Barion Mosó).
Kvöldið einkenndist af miklum hraða, spennu og fyrst og síðast mikilli gleði!
Tefldar voru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Sigurvegari mótsins eftir gjörsamlega frábæran endasprett eftir smá hökt í byrjun var Hannes Hlífar Stefánsson með 9v af 11 mögulegum.
Jafnir í 2-3 voru meistararnir Helgi Áss Grétarsson og Björn Þorfinnsson með 8v af 11 mögulegum.
Í 4-5 sæti með 7.5 vinning voru Ingvar Þór Jóhannesson og Sigurbjörn Björnsson.
Aukaverðlaunahafar:
U2000: Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
U1600: Leifur Þorsteinsson
Chess After Dark þakkar öllum keppendum fyrir komuna – hlökkum til að sjá ykkur 18. apríl
Bestu kveðjur,
CAD bræður
- Auglýsing -














