Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2461) er eini fulltrúi Íslands á EM einstaklinga sem fram fer í Vrnjacka Banja í Serbíu.
Vignir Vatnar tapaði fyrir rúmenska stórmeistaranum Kirill Svevchenko (2668) í sjöttu umferð sem fram fór í gær. Vignir hefur 4 vinninga og er 51.-124. sæti.
Sjöunda umferð fer fram í dag. Vignir teflir þá við armenska stórmeistarann Robert Hovhannisyan (2597) og stýrir hvítu mönnunum.
Bein slóð á skákina sem hefst kl. 14:15.
Gríðarleg þátttaka er á mótinu en þátt taka 484 skákmenn frá 40 löndum. Þar af eru 126 stórmeistararar. Vignir er nr. 152 í stigaröð keppenda en 23 efstu ávinna sér keppnisrétt í heimsbikarmótinu í skák.
- Auglýsing -














