Verðlaunahafar á Ungmennamóti Barion. Mynd: CAD

56 krakkar á grunnskólaaldri mættu til leiks á fyrsta Ungmennamót Bankans Bistro í Mosfellsbæ.

Mótið fór einstaklega vel fram og stóðu krakkarnir sig algjörlega frábærlega.

Tefldar voru 11 umferðir með tímamörkunum 3+2.

Gunnar Erik Guðmundsson sigraði mótið sannfærandi með 10v af 11 mögulegum og er þar af leiðandi fyrsti ungmennameistari Bankans Bistro!

Jöfn í 2-3 sæti voru Adam Omarsson og Iðunn Helgadóttir með 8.5v af 11 mögulegum.

Í 4-5 sæti með 8 vinninga voru Guðrún Fanney og Mikael Bjarki.

Aukaverðlaunahafar:

U12: Emilía Embla Berglindardóttir 7v af 11 mögulegum.

Stúlknaverðlaun: Iðunn Helgadóttir  8.5 v af 11 mögulegum.

Lokastöðuna má sjá hér: http://chess-results.com/tnr739146.aspx?lan=1&art=1&rd=11&flag=30

Chess After Dark & Bankinn Bistro þakka öllum kærlega fyrir komuna og hlökkum til að sjá ykkur aftur að ári.

Bestu kveðjur,
CAD bræður

 

- Auglýsing -